The Pink Mafia

The Pink Mafia

01.01.2009 23:57:35 / Arna Rut

Gleðilegt nýtt ár!



Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir öll gömlu árin.
Vona að allir hafi átt skemmtilegt gamlárskvöld. Við Bjarki eyddum þeim í faðmi stórfjölskyldunnar (minnar) á Seltjarnarnesinu.  Ég varð síðan eitthvað slöpp þegar líða tók á kvöldið svo að við fórum bara heim í kúr og DVD/bókalestur uppúr kl 1 :) Þokkaleg nörd!  En þar sem að við höfðum ekki gert nein plön og þekktum enga sem voru að gera nokkuð þá fórum við nú ekkert stressuð yfir því að beila á kvöldinu.
Mikið sakna ég samt grímubúninga-gamlárskvöldanna. Ég er meira að segja mikið að spá í að endurvekja þann sið einhverntímann þegar ég hef almennilegt húsnæði fyrir svoleiðis samkomu, a.m.k. nóg sætapláss.

Engin áramótaheit voru strengd þetta árið frekar en áður, ég hef einhvernveginn alltaf náð að klúðra þeim.
Ég hef góða tilfinningu fyrir árinu 2009 og held að þetta verði a.m.k frekar viðburðarríkt ár hjá mér. Sérstaklega þar sem að ég er að fara að útskrifast í vor (með BA próf í vöruhönnun) og síðan er stefnan sett á framhaldsnám erlendis, vonandi í Hollandi.

Sirrý og Hanna Steinunn fara aftur til útlanda um miðjan mánuð svo að það er alveg spurning að reyna að hittast eitthvað áður. Eigum við að reyna að halda áfram með þennan matarklúbb eða...? 

Eva, mér verður svo oft hugsað til þín á kvöldin þegar ég er að lesa í bók sem að ég fékk í jólagjöf, Karlar sem hata konur.  Og fyrir þá sem ekki vita þá er sögusviðið í Stokkhólmi (a.m.k. á fyrstu 100 bls. bókarinnar).  Mér finnst einmitt svo gaman að þekkja eitthvað til staðanna þegar ég les bækur.  Ég mæli eindregið með þessari bók:)

Hafið það gott skvísur!


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.10.2008 19:40:55 / Hildur

...hittingur!

hæ skats!

jæja... þessi mánudagur kom svo sannarlega með skelli.! Ávarp ... frumvarp...tja maður veit ekki hvernig þessi bankageiri mun líta út eftir morgundaginn.. segi ekki meir!

En að öðru máli...;) Ég hef verið allt of léleg að fylgjast með hérna! en ég er alveg til í að halda næsta matarklúbb...!!  flestar helgar opnar eins og staðan er í dag...

hvernig er staðan eruð þið Sirrý, Eva og Hanna + viðhengi á leið eitthvað til landsins á næstunni?

hvenær er von á hinum nýgiftu úr Ameríkuför?

er ekki málið að setja þetta inn í formúluna og finna svo út góða dagssetningu?

kram
Hildur


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.09.2008 16:05:47 / Svanhildur

Matarklúbbur :haha:

Sælar stúlkukindur og takk fyrir síðast :lol:

Ég er svona að velta því fyrir mér hvort að við eigum ekki að fara að stefna á saumóhitting eða matarklúbbshitting?  Hvernig líst ykkur á það? :þ  Væri svoldið gaman að hittast og gera eitthvað skemmtilegt saman!

Endilega látið heyra í ykkur :d

Sælar.......

» 4 hafa sagt sína skoðun

12.08.2008 12:03:26 / Hrafnhildur

Gæsun!

Hæ stelpur!

Langar að þakka ykkur fyrir síðast og þakka kærlega fyrir mig:d Þetta var alveg frábær dagur hjá ykkur og þið komuð mér svo sannarlega á óvart, eg var gjörsamlega grunlaus takk fyrir:) PANT fara AFTUR að snorkla, sjæse hvað þetta var gaman-algjört ævintýri!

Hver verður svo næsta gæs???? ég þarf að borga vel fyrir þetta austurvallar sprell!!!!!:klikk:

Brynja, hvernig er litli kútur? Er hann orðinn hress??

Allavega- knús til ykkar allra, þið eruð snillingar8)

Kveðja Gæsin (kanínan og fjölnis páskaunginn)


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.07.2008 23:55:57 / Arna Rut

Kapellustígur

Úff...haldiði ekki að mín sé bara að fara að flytja í Grafarholtið 5.ágúst.
Það hefur sennilega ekkert farið fram hjá ykkur að ég hafði nú ekki hugsað mér að flytja aftur í ,,sveitina" en svona er þetta nú bara:)
Við erum ss að fara að flytja í stúdentaíbúð og verðum þar næsta árið.  En þá flytjum við aftur, svaka stuð:)
En næsta árið þá verð ég frekar nálægt einhverjum ykkar þannig að kannski þið kíkið einhverntímann i heimsókn:)

Við erum ss að fara að flytja í efstu blokkina til hægri.





» 10 hafa sagt sína skoðun

20.07.2008 12:30:14 / Hanna Steinunn

hæ :)

Hellu skvísur. 

Mér datt í hug að henda inn einni færslu hérna bara svona til tilbreytingar hehehe

semsagt, það er allt þetta fínasta að frétta af mér :)  við fórum og skoðuðum þurrkara í gær (mér finnst ég svo fullorðin þegar ég er að skoða svona dót og er geðveikt spennt yfri því hehehe) nema hvað, við fundum þennan afskaplega fína þurrkara sem við ætlum að fjárfesta í :D  jibbííí ... 

við erum ekki ennþá búin að afgreiða rúmið, enda ætlum við að reyna að taka þetta rólega og skynsamlega... eruð þið með rúm sem þið mælið með??? 

Nú, annars þá er ég bara búin að vera rosa dugleg að vinna undanfarið :)  og svo skelltum við Gunn (stelpa úr vinnunni) á djamm á föstudaginn og ég get svo lifandi svarið það... ég hef ekki verið jafn þunn í laaaaangan tíma.... :(  klassískar setningar eins og "ég er hætt að drekka", "aldrei aftur" og fleiri voru á ferð og flugi í hausnum á mér :D

Annars þá er ég að fara að vinna næstu þrjár helgar (vinna upp fríið sem ég tók fyrir brúðkaupið) svo ég geri ekki ráð fyrir að djamma mikið á næstunni... svo byrja ég í skólanum 19 ágúst og hlakka afskaplega mikið til þess víhí :D

Tjah, annars þá langaði mig bara svona að láta heyra aðeins frá mér :D
Ég sakna ykkar allra alveg svakalega mikið !!!  en við sjáumst í bryllupinu í september svo ég hlakka mikið til að koma í það :D

Heyrumst síðar
Hanna Steinunn 

» 2 hafa sagt sína skoðun

07.07.2008 23:37:52 / Brynja

Afmælisstelpa dagsins:)

Elsku Arna Rut :)  Innilega til hamingju með afmælisdaginn, aldeilis blíðskapar veður sem þú fékkst í tilefni dagsins:)    vonandi áttir þú yndislegan dag :)
knús og koss Brynja :)
úff rétt náði fyrir miðnætti, búin að vera  á leiðinni í allan dag að henda inn kveðju hérna  :) 



» 5 hafa sagt sína skoðun

08.06.2008 09:28:58 / Eva Ósk

Afmaelisstelpa dagsins!

Til hamingju med afmaelid elsku Svansy!
Eigdu gódan dag8)

Kram, Eva Ósk.

p.s. hlakka til ad sjá ykkur eftir adeins 20 daga!!:haha:

» 5 hafa sagt sína skoðun

28.05.2008 22:49:59 / Arna Rut

Hverjir drekka hvað?

Ég nennti varla að senda þessa spurningu á e-maili, ætti að vera fljótsvarað hérna á blogginu:) 
Ætti það ekki alveg að ganga upp að kaupa drykki fyrir alla fyrir matarhittinginn svo að fólk þurfi ekki að koma með sitt eigið? 

Ef allir eru sammála þvi að það ætti að ganga upp þá megið þið endilega kommenta hvaða gos þið og ykkar fólk drekkur venjulega með mat:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.05.2008 17:07:22 / Hanna Steinunn

Hún á afmæl'í dag :)


Elsku Sirrý ... mér tókst ekki að setja inn mynd af þér... ég kann ekki alveg nógu vel á þetta held ég..

En... hjartanlega til hamingju með afmælið kerla mín !!!! :haha:

koma svo stelpur... slúðra :D

kveðja,
Hanna Steinunn

» 6 hafa sagt sína skoðun

23.04.2008 09:26:58 / Svanhildur

Afmælisstelpur!!!!!!!!!!

Obbobbbobbb ég hélt að ég gæti treyst á mér fróðari afmæliskonur en svo er ekki :^)  Við gleymdum að óska Hildi til hamingju með afmælið í gær 8|  Skamm skamm :frown:  En betra er seint en aldrei þannig að:

Elsku Hildur, til hamingju með afmælið í gær :p  Vonandi áttiru góðan dag!

Síðan á Brynja afmæli í dag!! Tveggja barna móðirin okkar bara orðin 27 ára :lol:  Hafðu það gott í dag skvís!!

Hvað er annars að frétta stelpur?  Komið með eitthvað krassandi 8|  Á að skella sér eitthvað erlendis í sumar?  Hvernig gengur með krílin?  Hvað á að gera í sumar þið sem eruð í námi?

Yfir og út.....

» 8 hafa sagt sína skoðun

14.04.2008 11:21:14 / Brynja

Eva Ósk Afmælisstelpa :)

jæja gamla gamla...(nýt þess að segja þetta í nokkra daga..ok:)  Til hamingju með afmælið í gær:)  skál í boðinu...


jæja lifðu í lukku en ekki í krukku.
kv Brynja ;)

» 7 hafa sagt sína skoðun

08.04.2008 17:13:20 / Arna Rut

Obbosi

Jæja skvísur...ég steingleymdi að setja inn linkinn fyrir síðuna sem ég sagði ykkur frá.

obbosi






» 1 hafa sagt sína skoðun

28.03.2008 19:39:30 / Hrafnhildur

Saumó!

Jæja stúlkur!
Hvað segið þið um hitting næsta fimmtudag klukkan 20.00???? Kominn tími á smá slúðurhitting og auðvitað smá kræsingar með;) Svo er litlu snuddustelpunni farið að langa að hitta ykkur8)
Endilega látið vita hvort þið komist:lol:

» 13 hafa sagt sína skoðun

27.03.2008 00:24:08 / Arna Rut

Noregsfararnir komnir aftur heim

Jæja þá erum við Bjarki komin heim frá Noregi...eftir æðislega viku á snjóbretti í Hemsedal, frábæra páskadagsmáltíð a la Jóhanna mamma, tvo yndislega daga hjá Hönnu Steinunni og Eyjó  í góðu yfirlæti.  Hanna Steinunn fór með okkur Bjarka til Osló og guidaði okkur í gegnum það helsta.  Síðan fórum við á skíði og bretti um kvöldið í fjallinu þeirra Hönnu St. og Eyjós, sem var ofsa fínt!  Og svo var bara allt svo frábært...yndislegt að hitta Hönnu St. og bara allt:)

Brynja og Hrafnhildur (og makar) innilega til hamingju með nöfnin á börnunum ykkar!!!  Og Brynja til hamingju með Snædísi Lilju:)


Bjarki og Hanna Steinunn stíga trylltan dans í Vigelandsparken í Oslo.

» 2 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 33